Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 12. febrúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markahæsti maður Ipswich frá til áramóta
Mynd: Getty Images
Freddie Sears, markahæsti leikmaður Ipswich á tímabilinu, skaddaði krossband og verður frá út árið, eða að minnsta kosti níu mánuði.

Þetta er skellur fyrir Ipswich sem hefur átt skelfilegt tímabil og situr á botni Championship deildarinnar, níu stigum frá öruggu sæti.

Sears var búinn að gera 6 mörk í 24 deildarleikjum en liðið er aðeins búið að skora 23 mörk það sem af er tímabils.

Sears er 29 ára gamall og hefur skorað 30 mörk í 177 leikjum fyrir Ipswich frá því að hann skrifaði undir í janúar 2015.

Líklegt er að Kayden Jackson muni taka stöðu Sears í framlínunni en allt útlit er fyrir að Ipswich muni leika í C-deildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner