Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 11. febrúar 2019 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
Schmeichel: Áttum ekki að reka Moyes
Mynd: Getty Images
Peter Schmeichel er goðsögn hjá Manchester United og af mörgum talinn besti markvörður í sögu félagsins.

Skoðanir hans eru þó umdeildar og eru margir stuðningsmenn Man Utd ósammála honum þegar það kemur að David Moyes.

Sir Alex Ferguson valdi Moyes sem arftaka sinn og stýrði hann Man Utd í tíu mánuði. Schmeichel telur það hafa verið mistök að reka hann á hans fyrsta tímabili.

„Ef það er eitthvað sem ég sé eftir hjá Manchester United þá er það að við gáfum David Moyes bara 7 mánuði. Við áttum að gefa honum meiri tíma, hann hefði vaxið inn í starfið," sagði Schmeichel í beinni útsendingu á beIN Sports.

„Hann er með rétta persónuleikann og hefur skilninginn sem þarf. Hann átti margt ólært en engan kennara. Hann sá um allt uppá eigin spýtur, séð frá sjónarhorni félagsins þá áttum við aldrei að reka hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner