þri 12. febrúar 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Draxler: Við getum stöðvað Pogba
Pogba hefur verið í stuði undanfarnar vikur.
Pogba hefur verið í stuði undanfarnar vikur.
Mynd: Getty Images
Julian Draxler, miðjumaður PSG, er bjartsýnn á að frönsku meistararnir nái að halda Paul Pogba miðjumanni Manchester United í skefjum í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Pogba hefur verið frábær undanfarnar vikur en hann hefur skorað átta mörk og lagt upp fimm í tíu leikjum síðan Ole Gunnar Solskjær tók við stjórnartaumunum í desember.

„Ég hef þekkt Paul lengi. Ég hef spilað gegn honum þegar Þýskaland og Frakkland mætast. Við höfum nokkrum sinnum náð að stöðva hann," sagði Draxler.

„Hann er frábær leikmaður, topp leikmaður með mikil gæði og leikmaður sem getur látið til sín taka í toppleik í Meistaradeildinni."

„Við erum líka með góða leikmenn sem ég tel að geti stöðvað hann."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner