ÍBV fékk í vikunni veglegt tilboð um að mæta kínversku meisturunum í Shanghai SIPG í æfingaleik í Dubai en
Samkvæmt heimildum mbl.is barst boðið með mjög stuttum fyrirvara og Eyjamenn urðu að afþakka það þar sem þeir gátu ekki komist til Dubai í tæka tíð.
Leikurinn átti að fara fram á morgun, miðvikudag, og ferðalagið og uppihaldið allt greitt af kínverska félaginu. Þeir gátu í fyrsta lagi verið komnir á leikstað á fimmtudag.
Á meðal leikmanna Shanghai SIPG er Oscar fyrrum miðjumaður Chelsea sem og brasilíski miðjumaðurinn Hulk.
ÍBV hóf leik í Lengjubikarnum á laugardag þegar liðið tapaði 1-0 gegn KR en næsti leikur liðsins er gegn Víkingi Ólafsvík laugardaginn 23. febrúar.
Athugasemdir