Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. febrúar 2019 23:30
Arnar Helgi Magnússon
Pirraður Mbappe: Hefði átt að skora þriðja markið
Úr leiknum í kvöld
Úr leiknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Franska undrabarnið, Kylian Mbappe, var ekki 100% sáttur eftir sigur PSG á Manchester United í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Mbappe skoraði síðara mark PSG í leiknum eftir sendingu frá Angel Di Maria.

„Þetta er fínt, ekki fullkomið. Ég er sáttur með það að sigra og að skora en ég hefði átt að setja annað mark og ég er svekktur út í sjálfan mig að hafa ekki gert það."

„Þriðja markið hefði farið langt með það að klára einvígið. Ég verð að undirbúa mig undir það að skora mark í París."

Neymar og Edinson Cavani voru hvorugir með í kvöld og óvíst með þáttöku þeirra í síðari leiknum.

„Við þurfum að hætta að vera hrætt. Auðvitað eru þeir mikilvægir en fólk verður að styðja okkur sama hvort þeir séu með eða ekki. Það sást í kvöld hversu góðir við erum."
Athugasemdir
banner
banner