Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. febrúar 2019 11:30
Elvar Geir Magnússon
Enn og aftur verður Bong fyrir kynþáttaníð
Gaetan Bong.
Gaetan Bong.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmaður Burnley er sakaður um að hafa verið með kynþáttaníð í garð Gaetan Bong, leikmanns Brighton & Hove Albion, í viðureign liðanna síðasta laugardag.

Tveir stuðningsmenn voru handteknir á leiknum; Nathan Higgins sem er átján ára nemi og Stewart Higgins sem er 53 ára verkfræðingur. Sá fyrrnefndi er sakaður um kynþáttafordómana.

Kick It Out samtökin, sem berjast gegn rasisma í fótbolta, hafa lýst yfir ánægju með hversu snöggt var brugðist við.

Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af því að stuðningsmenn West Bromwich Albion hefðu sungið ljóta söngva um Bong en á síðasta tímabili rannsakaði enska sambandið meinta kynþáttafordóma Jay Rodriguez í garð Bong.
Athugasemdir
banner
banner