Raul Albiol, varnarmaður Napoli, mun ekki spila meira á þessu tímabili.
Þessi 34 ára leikmaður þarf að fara í aðgerð. Hann ætlaði að bíða með aðgerðina en sársaukinn var það mikill að hann ákvað að gangast undir hnífinn sem fyrst.
Þessi 34 ára leikmaður þarf að fara í aðgerð. Hann ætlaði að bíða með aðgerðina en sársaukinn var það mikill að hann ákvað að gangast undir hnífinn sem fyrst.
Þessi meiðsli gera það að verkum að Nikola Maksimovic og Vlad Chiriches þurfa að taka aukna ábyrgð í varnarleiknum.
Napoli er í öðru sæti í ítölsku A-deildinni, ellefu stigum frá toppliði Juventus.
Athugasemdir