David Seaman, fyrrum markvörður Arsenal, segist enn vera reiður yfir því að Arsenal muni missa Aaron Ramsey til Juventus.
Velski landsliðsmaðurinn fer til Tórínó þegar samningur hans við Arsenal rennur út í sumar.
Ramsey hefur verið ellefu ár á Emirates.
Velski landsliðsmaðurinn fer til Tórínó þegar samningur hans við Arsenal rennur út í sumar.
Ramsey hefur verið ellefu ár á Emirates.
„Það sýður enn á mér yfir þeirri staðreynd að við séum að fara að missa Ramsey," segir Seaman.
„Það sem pirrar mig enn frekar er að þeir tilkynna að Emery muni fá 40 milljónir punda í að kaupa í sumar, það er svipuð upphæð og maður þarf til að halda Ramsey."
„Það gerir mann reiðan að sjá gæðaleikmenn fara. Ég veit ekki hver framtíðarhugsjónin er."
Athugasemdir