Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. febrúar 2019 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fagnaðarlætin mikil hjá Neymar
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar er meiddur og missti af leik Paris Saint-Germain og Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Neymar horfði á leikinn heima í stofu og skemmti sér konunglega.

PSG vann leikinn 2-0 með mörkum frá Presnel Kimpempe og Kylian Mbappe. Sá síðarnefndi steig allverulega upp í fjarveru Neymar.

Sigurinn var sanngjarn og er PSG í draumastöðu fyrir seinni leikinn í Frakklandi. Neymar missir líka af seinni leiknum.

Hér að neðan má sjá hvernig Neymar brást við mörkum PSG frá því í gær.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner