Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. febrúar 2019 07:30
Arnar Helgi Magnússon
Ari Leifsson framlengir við Fylki
Ari Leifsson, til vinstri.
Ari Leifsson, til vinstri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Leifsson hefur framlengt samning sinn við Fylki og mun leika með liðinu til ársins 2021.

Ari er fæddur árið 1998 og er uppalinn í Fylki. Hann lék alla 22 leikina með Fylki í Pepsideildinni síðasta sumar

Hann hefur alls spilað 38 deildar og bikarleiki með Fylki og 6 leiki með U-21 árs liði Íslands.

Fylkir fékk á dögunum Arnór Gauta Ragnarsson til liðs við sig frá Breiðablik. Sam Hewson gekk í raðir liðsins fyrir jól og Helgi Valur Daníelsson framlengdi samning sinn við félagið nýverið.

Fylkir mætti Þrótti R. í Lengjubikarnum í gær og þar bar Ari fyrirliðaband Fylkis í leiknum. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner