Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. febrúar 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Theodór Guðni í Reyni (Staðfest)
Theodór Guðni Halldórsson.
Theodór Guðni Halldórsson.
Mynd: Reynir S.
Framherjinn Theodór Guðni Halldórsson hefur skrifað undir eins árs samning hjá Reyni Sandgerði.

Theodór hefur undanfarin fjögur tímabil spilað með Njarðvíkingum.

Theodór er uppalinn Sandgerðingur og lék með yngri flokkum Reynis á sínum yngri árum.

Hann hefur leikið alls 94 leiki í meistaraflokki, með Keflavík og Njarðvík, og skorað í þeim 44 mörk. Þá lék Teddi 3 leiki með U-19 landsliði Íslands.

„Stjórn ksd. Reynis býður Tedda velkominn til baka og hlakkar til samstarfsins," segir í tilkynningu frá Reyni.

Sandgerðingar eru að styrkja sig fyrir sumarið en félagið hefur einnig samið við varnarmanninn Admir Kubat eins og kom fram í morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner