Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 18. febrúar 2019 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Nürnberg tókst að halda hreinu gegn Dortmund
Borussia Dortmund tókst ekki að vinna Nürnberg
Borussia Dortmund tókst ekki að vinna Nürnberg
Mynd: Getty Images
Nurnberg 0 - 0 Borussia D.

Þýska liðið Nürnberg náði því merkilega afreki að halda hreinu gegn toppliði Borussia Dortmund í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Nürnberg.

Dortmund hefur verið yfirburðalið á þessu tímabili en þrátt fyrir það tókst þeim ekki að brjóta niður botnlið Nürnberg.

Toppliðið fékk 17 færi í leiknum en boltinn vildi ekki inn á meðan Nürnberg fékk 7 tilraunir.

Mikilvægt stig fyrir Nürnberg en liðið er í neðsta sæti deildarinnar með 13 stig á meðan Dortmund er í efsta sæti með 51 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner