Dregið var í 8-liða úrslit enska bikarsins í kvöld en Manchester United heimsækir Wolverhampton Wanderers á Molineux-leikvanginn.
United lagði Chelsea með tveimur mörkum gegn engu í kvöld og í kjölfarið komst liðið í 8-liða úrslitin. Wolves vann á meðan Bristol CIty sem átti öflugt ár í bikarnum.
Swansea City spilar þá gegn Manchester City á Liberty-leikvanginum.
Watford og Crystal Palace eigast þá við á meðan Brighton og Millwall mætast í hörkuleik.
Drátturinn:
Wolves - Manchester United
Swansea - Manchester City
Watford - Crystal Palace
Millwall - Brighton
Athugasemdir