Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 20. febrúar 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Evrópudeildin í dag - Leikur á miðvikudegi
Sevilla er í góðum málum.
Sevilla er í góðum málum.
Mynd: Getty Images
Leikur dagsins:
17:00 Sevilla - Lazio (Stöð 2 Sport)

Það er leikið í Evrópudeildinni í dag er Sevilla og Lazio mætast í athyglisverðum leik í Andalúsíu.

Þetta er seinni leikur liðanna í 32-liða úrslitunum, en fyrri leikurinn á Ítalíu endaði með 1-0 sigri Sevilla. Wissam Ben Yedder skoraði sigurmark Sevilla.

Leikurinn í kvöld er klukkan 17:00 og er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Vanalega eru Evrópudeildarleikir á fimmtudögum og eru hinir leikirnir í Evrópudeildinni á morgun. Ástæðan fyrir því að þessi leikur í dag er sú að Real Betis, nágrannar Sevilla, eru að spila á heimavelli á morgun.
Athugasemdir
banner
banner