Leicester mætir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á morgun í ensku úrvalsdeildinni. Leikið verður á King Power vellinum, heimavelli Leicester.
Ben Chilwell og James Maddisson, leikmenn Leicester, eru báðir tæpir fyrir leikinn vegna meiðsla.
Þeir hafa báðir leikið lykilhlutverk í liðinu Leicester á leiktíðinni og vegna þess hafa þeir verið orðaðir við stærri lið.
Þeir eru þó ekki þeir einu sem að eru á meiðslalista Leicester en Daniel Amartey og Marc Albrighton verða hvorugir með á morgun.
„Amartey og Albrighton verða ekki klárir en við erum að vonast til þess að Chilwell og Maddison verði tilbúnir en það verður að koma í ljós á morgun (í dag)," segir Claude Puel, stjóri Leicester.
Athugasemdir