Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. febrúar 2019 06:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Afmælisþáttur Fótbolta.net á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fagnar tíu árum á X977 í dag laugardag. Þátturinn verður milli 12 og 14 eins og (næstum) alla laugardaga síðustu tíu ár.

Elvar Geir og Tómas Þór munu horfa til baka og rifja upp fæðingu þáttarins.

Einnig verður rætt um íslenska boltann. Opinberaðir verða tíu leikmenn sem sérstaklega spennandi verður að fylgjast með í Pepsi Max-deildinni næsta sumar.

Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um Liverpool, hitar upp fyrir stórleik Manchester United og Liverpool.

Gestur þáttarins er svo enginn annar en Gunnleifur Gunnleifsson.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner