Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. febrúar 2019 21:25
Arnar Helgi Magnússon
Einkunnir Arsenal gegn BATE: Guendouzi bestur
Bestur í kvöld.
Bestur í kvöld.
Mynd: Getty Images
Arsenal tryggði sér farseðil í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar þegar liðið sigraði BATE Borisov í kvöld, 3-1. Samanlögð úrslit úr leikjunum tveimur voru 3-1.

Sky Sports tók saman einkunnir leikmanna eftir leikinn en miðstvæðið hjá Arsenal var sterkt ef marka má einkunnir leikmanna þar.

Granit Xhaka lagði upp tvö mörk í leiknum en Frakkinn ungi í liði Arsenal, Mattéo Guendouzi, var valinn maður leiksins.

Alexander Hleb, leikmaður BATE, mætti á sinn gamla heimavöll í kvöld en hann spilaði með Arsenal frá árinu 2005 til 2008. Hann fékk fimm í einkunn.

Það kemur í ljós á morgun hvaða liði Arsenal mætir í 16-liða úrslitum keppninnar.

Arsenal: Cech (6), Lichtsteiner (7), Koscielny (7), Mustafi (7), Monreal (7), Guendouzi (8), Xhaka (8), Mkhitaryan (8), Ozil (7), Iwobi (7), Aubameyang (6).

Varamenn: Sokratis (7), Torreira (6), Suarez (spilaði ekki nóg)

Maður leiksins: Mattéo Guendouzi
Athugasemdir
banner
banner
banner