Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. febrúar 2019 17:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikarinn: Jafntefli hjá Leikni og Þór
Aron skoraði jöfnunarmark leiksins í dag
Aron skoraði jöfnunarmark leiksins í dag
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leiknir R. og Þór mættust í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins í dag. Leikurinn var annar leikur liðanna í riðlinum. Þórsarar unnu sinn fyrsta leik 7-0 gegn Magna en ÍA lagði Leiknismenn að velli í fyrsta leik Leiknis.

Sævar Atli Magnússon kom Leiknismönnum yfir á 36. mínútu en Aron Kristófer Lárusson jafnaði leikinn fyrir Þórsara eftir tæplega tíu mínútna leik í seinni hálfleik.

Næstu leikir liðanna eru 1. og 2. mars en Þórsarar mæta ÍA og Leiknir mætir Grindavík.

Leiknir R. 1-1 Þór
1-0 Sævar Atli Magnússon ('36)
1-1 Aron Kristófer Lárusson ('54)
Athugasemdir
banner
banner