Grindavík mætti Magna í Akraneshöllinni í Lengjubikarnum í dag. Liðin leika í riðli 1 í A-deild keppninnar.
Leikurinn var annar leikur liðanna í riðlinum. Grindavík tapaði 2-1 gegn Stjörnunni í fyrsta leik sínum en Magnamenn steinlágu gegn Þórsurum 7-0 í sínum fyrsta leik.
Aron Jóhannsson kom Grindvíkingum yfir á 26. mínútu leiksins. Aron bætti öðru marki við þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfeik en undir lok leiks skoraði Hilmar McShane þriðja mark Grindvíkinga og lokamark leiksins.
Fyrr í dag gerðu Leiknir R. og Þór 1-1 jafntefli í sama riðli. Næstu leikir liðanna eru næsta laugardag en þá mætir Magni Stjörnunni og Grindavík mætir Leikni R.
Grindavík 3-0 Magni
1-0 Aron Jóhannson ('26)
2-0 Aron Jóhannson ('55)
3-0 Hilmar Andrew McShane ('89)
Athugasemdir