Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. febrúar 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: ManchesterEveningNews 
Hópurinn hjá Manchester United - Matic og Martial ekki sjáanlegir
Mynd: Getty Images
Manchester United tekur á morgun á móti Liverpool í risaslag í ensku Úrvalsdeildinni. Manchester Evening News hefur birt hópinn sem United teflir fram á morgun.

Tuttugu leikmenn eru staðfestir í hópnum samkvæmt MEN. Það eru þeir: David de Gea, Sergio Romero, Lee Grant, Diogo Dalot, Chris Smalling, Victor Lindelof, Eric Bailly, Marcos Rojo, Luke Shaw, Ashley Young, Fred, Scott McTominay, Ander Herrera, Paul Pogba, Andreas Pereira, Juan Mata, Alexis Sanchez, Jesse Lingard, Marcus Rashford, Romelu Lukaku.

Antonio Valencia, Phil Jones og Matteo Darmian eru frá vegna meiðsla sem og Anthony Martial. Vonir voru bundnar við það að Martial næði leiknum.

Enginn Nemanja Matic er sjáanlegur á listanum hjá MEN. Jesse Lingard er í hópnum en hann meiddist á dögunum gegn PSG.
Athugasemdir
banner