Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. febrúar 2019 21:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn: Athletic með sigur
Berchiche er hér í baráttu við Messi en hann lagði upp sigurmark Athletic í kvöld
Berchiche er hér í baráttu við Messi en hann lagði upp sigurmark Athletic í kvöld
Mynd: Getty Images
Í kvöld fóru fram tveir leikir í spænsku La Liga. Alaves tók á móti Celta Vigo í fyrri leik kvöldsins en þar var fátt um fína drætti.

Alaves er í hörku evrópubaráttu en Celta Vigo í mikilli fallbaráttu. Alaves hefði með sigri í dag skotist upp fyrir Sevilla í fimmta sæti deildarinnar. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og það gerðu gestirnir. Með aðstoð varsjá var það mark dæmt ólöglegt og því endaði leikurinn með 0-0 jafntefli.

Í seinni leik kvöldsins tók Athletic á móti Eibar. Liðin voru í ellefta og tólfta sæti deildarinnar fyrir leikinn.

Raul Garcia skoraði eina mark leiksins og kom það strax á fyrstu mínútu leiksins. Yuri Berchiche kommst upp að endamörkum vallarins og renndi boltanum út í teiginn þar sem Raul Garcia var einn á auðum sjó. Garcia skaut í fyrsta og skoraði með föstu skoti.

Alaves 0-0 Celta Vigo

Athletic 1-0 Eibar
1-0 Raul Garcia ('1)
Athugasemdir
banner
banner
banner