KR mætti í kvöld New England Revolution í æfingaleik í Bandaríkjunum. New England endaði í 8. sæti í Austurdeildinni í MLS deildinni á síðustu leiktíð.
Leikurinn fór fram á IMG Soccer Stadium í Flórída. Leikurinn var síðasti leikur New England manna áður en MLS deildin hefst í byrjun mars. KR er í æfingaferð í Bandaríkjunum.
Cristian Penilla kom New England mönnum yfir úr vítaspyrnu á tólftu mínútu. Ægir Jarl Jónasson jafnaði leikinn fyrir KR á 70. mínútu en Ægir skoraði með skalla eftir að markvörður New England misreiknaði fyrirgjöf frá hægri.
Luis Caicedo skoraði sigurmark leiksins fyrir New England menn á 84. mínútu.
Sjáðu svipmyndir úr leiknum:
Athugasemdir