Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. mars 2019 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Stjarnan lánar tvo efnilega í KFG
Mynd: KFG
Stjarnan hefur lánað þá Tristan Ingólfsson og Pál Hróar Helgason yfir til KFG.

Páll Hróar er fæddur árið 2000 og spilaði með Fjarðabyggð í 2. deildinni síðasta sumar. Hann lék tuttugu leiki fyrir félagið og skoraði í þeim eitt mark. Páll er varnarmaður.

Tristan Ingólfsson á ekki skráðan meistaraflokksleik en hann er uppalinn hjá Stjörnunni.

Þeir hafa báðir leikið og æft með KFG á undirbúningstímabilinu. KFG mun leika í 2. deildinni í sumar eftir að hafa komist upp úr 3. deild á síðasta tímabili.

KFG mætti Vængjum Júpíters í gær og voru þeir báðir í byrjunarliði KFG í leiknum.
Athugasemdir
banner