Rio Ferdinand, knattspyrnusérfræðingur, segir að Raheem Sterling ætti að vinna verðlaunin fyrir besta leikmann ársins í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég elska þennan gæja. Fyrir mér er hann besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og ætti að fá þau verðlaun," segir Rio Ferdinand.
„Hann spilar kannski ekki alla leiki vel en þegar hann gerir það þá er hann magnaður fyrir City."
Raheem Sterling er kominn með átján mörk á leiktíðinni og níu stoðsendingar.
Verðlaun fyrir besta leikmann tímabilsins verða veitt þegar deildinni er lokið í maí.
Athugasemdir