Romelu Lukaku, sóknarmaður Manchester United, missir líklega af bikarleiknum gegn Wolves á laugardagskvöld.
Lukaku er meiddur á ökkla og óvíst er með þátttöku hans með Belgíu í komandi landsleikjahléi.
Ole Gunnar Solskjær sagði á fréttamannafundi í dag að óvissa væri með þátttöku Lukaku á morgun.
Lukaku er meiddur á ökkla og óvíst er með þátttöku hans með Belgíu í komandi landsleikjahléi.
Ole Gunnar Solskjær sagði á fréttamannafundi í dag að óvissa væri með þátttöku Lukaku á morgun.
Anthony Martial kom aftur inn í hópinn í tapinu gegn Arsenal á Emirates og gæti byrjað á morgun. Alexis Sanchez og Juan Mata eru enn meiddir og Jesse Lingard glímir við meiðsli aftan í læri.
Meiðsli Lukaku gætu opnað dyr fyrir hinn unga Mason Greenwood sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið United í sigrinum í París.
Það er nóg framundan hjá United sem berst fyrir því að enda í topp fjórum í ensku úrvalsdeildinni og er í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og FA bikarsins.
Athugasemdir