Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. mars 2019 17:30
Elvar Geir Magnússon
Isco gæti ekki verið ánægðari með Zidane
Verður Isco í byrjunarliðinu á morgun?
Verður Isco í byrjunarliðinu á morgun?
Mynd: Getty Images
Isco var úti í kuldanum hjá Real Madrid undir stjórn Santiago Solari en þessi 26 ára leikmaður fagnar endurkomu Zinedine Zidane.

Talið var að Isco væri á leið frá Madrídarliðinu í sumar en Arsenal, Chelsea, Manchester United og Liverpool hafa sýnt honum áhuga.

Zidane er mikill aðdáandi Isco og aðdáunin er gagnkvæm.

„Við þekkjum hann allir vel. Hann var magnaður sem leikmaður hjá félaginu og sem þjálfari vann hann allt. Það eru góðar fréttir fyrir alla að hann sé mættur aftur," segir Isco.

„Það segir ýmislegt um hann að hann snýr aftur á flóknu augnabliki. Ég vona að hann geti komið okkur aftur á sigurbraut."

„Hjá Real Madrid eru settar miklar kröfur og við eigum að vinna alla bikara. Jafnvel þó þetta hafi ekki verið okkar ár þá höfum við sjálfstraust í að snúa aftur sterkari en nokkru sinni fyrr. Sagan ýtir okkur áfram."

Real Madrid er í þriðja sæti í La Liga, tólf stigum frá toppliði Barcelona. Liðið mætir Celta Vigo á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner