Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. mars 2019 19:00
Elvar Geir Magnússon
Perez þarf að ná meiri stöðugleika
Benítez og Perez.
Benítez og Perez.
Mynd: Getty Images
Bournemouth mætir Newcastle á morgun í ensku úrvalsdeildinni. Ayoze Perez, leikmaður Newcastle, kom til umræðu á fréttamannafundi Rafa Benítez í dag.

„Enginn hefur efasemdir um gæði hans. Hann getur gert gæfumuninn í leikinn. Hann veit það sjálfur að hann þarf að sýna meiri stöðugleika," sagði Benítez.

Salomon Rondon er hjá Newcastle á láni frá West Brom. Benítez veit ekki hvernig framtíðin verður hjá honum.

„Það er best fyrir hann og okkur að hann haldi einbeitingu. Það er best að spila vel og svo getum við horft til framtíðar."

Newcastle er í 13. sæti, sex stigum fyrir ofan fallsæti.

Sjá einnig:
England um helgina - Leikið í deildinni og bikarnum
Athugasemdir
banner
banner
banner