Íslenski framherjinn Viðar Örn Kjartansson er á leið til sænska úrvalsdeildarfélagsins Hammarby en það er Expressen sem greinir frá.
Viðar leikur með Rostov í Rússlandi en hann hefur fengið mörg tilboð síðustu vikur og þar á meðal frá Bandaríkjunum, Kasakstan og auðvitað Svíþjóð.
Djurgården og Hammarby börðust um kappann en Hammarby bauð betur samkvæmt Expressen.
Viðar verður lánaður frá Rostov til Hammarby fram á sumar og svo verður tekin ákvörðun um framhaldið.
Hann er á leið í læknisskoðun hjá Hammarby og mun í kjölfarið skrifa undir samning við félagið.
Selfyssingurinn á góðar minningar frá Svíþjóð en hann skoraði 17 mörk í 26 leikjum með Malmö árið 2016.
Athugasemdir