lau 16. mars 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Semedo: Erfiðara fyrir okkur ef Ronaldo væri enn í Real Madrid
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Nelson Semedo, leikmaður Barcelona á Spáni, segir að hlutirnir væru töluvert erfiðari fyrir liðið ef Cristiano Ronaldo væri enn í Real Madrid.

Ronaldo yfirgaf Real Madrid síðasta sumar og samdi við Juventus og þá steig Zinedine Zidane til hliðar. Gengi Real á þessu tímabili hefur þá verið slakt og tvisvar hefur þjálfaranum verið sagt upp störfum.

Semedo er liðsfélagi Ronaldo í portúgalska landsliðinu og væri til í að hafa hann áfram á Spáni.

„Real Madrid finnur alveg fyrir því að vera ekki með Ronaldo," sagði Semedo.

„Ég er ekki að segja að það sé slæmt fyrir okkur að Cristiano hafi ákveðið að fara en ef hann væri hér enn þá væri þetta mun erfiðara fyrir okkur," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner