lau 16. mars 2019 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Leeds ekki á toppinn eftir tap á heimavelli
Casilla fékk að líta rauða spjaldið.
Casilla fékk að líta rauða spjaldið.
Mynd: Getty Images
Leeds 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Chris Basham ('71 )
Rautt spjald:Kiko Casilla, Leeds ('90)

Leeds missti af tækifæri til að komast á toppinn í Championship-deildinni þegar liðið tapaði á heimavelli gegn Sheffield United í leik sem hófst klukkan 12:30.

Chris Basham skoraði eina markið í leiknum þegar um 20 mínútur voru til leiksloka.

Undir lokin var Kiko Casilla, markvörður Leeds, rekinn út af. Varnarmaðurinn Pontus Jansson fór í markið og hélt hreinu síðustu sekúndurnar.

Leeds á níu leiki eftir og er tveimur stigum á eftir toppliði Norwich. Sheffield United er í þriðja sæti með tveimur stigum minna en Leeds.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner