Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 16. mars 2019 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Atletico Madrid tapaði í Bilbao
Antoine Griezmann tókst ekki að svara í Bilbao.
Antoine Griezmann tókst ekki að svara í Bilbao.
Mynd: Getty Images
Athletic Bilbao 2 - 0 Atletico Madrid
1-0 Inaki Williams ('73 )
2-0 Kenan Kodro ('85 )

Atletico Madrid er ekki búið að ná sér eftir skellinn á Juventus Stadium og tapaði öðrum leiknum í röð í kvöld.

Nú var förinni heitið á San Mamés, heimavöll Athletic Bilbao, og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik. Heimamenn komust nálægt því að skora fyrir leikhlé en gestirnir frá Madríd áttu ekki eina einustu marktilraun.

Síðari hálfleikurinn var opinn og fjörugur og komust bæði lið nálægt því að skora áður en Inaki Williams kom heimamönnum yfir.

Gestirnir blésu til sóknar og opnuðu vörnina sem leiddi til þess að Kenan Kodro innsiglaði sigur Bilbao eftir góða skyndisókn.

Atletico Madrid er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar, þó aðeins tveimur stigum fyrir ofan nágrannana í Real Madrid. Bilbao er aðeins þremur stigum frá Evrópusæti þrátt fyrir að hafa verið í fallbaráttu stærsta hluta tímabilsins.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 29 22 6 1 64 20 +44 72
2 Barcelona 29 19 7 3 60 34 +26 64
3 Girona 29 19 5 5 59 34 +25 62
4 Athletic 29 16 8 5 50 26 +24 56
5 Atletico Madrid 29 17 4 8 54 34 +20 55
6 Real Sociedad 29 12 10 7 42 31 +11 46
7 Betis 29 10 12 7 34 33 +1 42
8 Valencia 28 11 7 10 32 32 0 40
9 Getafe 29 9 11 9 37 42 -5 38
10 Villarreal 29 10 8 11 47 51 -4 38
11 Las Palmas 29 10 7 12 29 32 -3 37
12 Osasuna 29 10 6 13 33 43 -10 36
13 Alaves 29 8 8 13 26 35 -9 32
14 Mallorca 29 6 12 11 25 35 -10 30
15 Vallecano 29 6 11 12 25 38 -13 29
16 Sevilla 29 6 10 13 36 44 -8 28
17 Celta 29 6 9 14 32 44 -12 27
18 Cadiz 29 3 13 13 20 40 -20 22
19 Granada CF 28 2 8 18 30 58 -28 14
20 Almeria 29 1 10 18 28 57 -29 13
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner