Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. mars 2019 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Swansea og Man City: Aguero fær 7 - Bernardo bestur
Mynd: Getty Images
Manchester City kom til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir gegn Swansea í 8-liða úrslitum enska bikarsins.

Innkoma Sergio Agüero af bekknum breytti gangi leiksins en hann skorar þó ekki hæst í einkunnagjöf Sky Sports sem telja Bernardo Silva hafa verið besta mann vallarins.

Agüero fær aðeins 7 í einkunn fyrir sinn þátt en Bernardo 8. Enginn annar leikmaður City fékk yfir 6 í einkunn.

Leikmenn Svananna fengu hærri einkunnir en enginn komst þó yfir sjöuna.

Einkunnagjöfin hefði eflaust verið talsvert öðruvísi með myndbandsdómgæslu þar sem síðustu tvö mörk City áttu líklega ekki að standa.

Swansea: Nordfeldt (7), Roberts (6), Van der Hoorn (6), Carter-Vickers (6), Grimes (7), Fulton (6), Celina (7), Byers (6), Dyer (6), James (6), Routledge (6)
Varamenn: Asoro (5), John (5), Harries (5)

Man City: Ederson (6), Walker (6), Otamendi (6), Laporte (5), Delph (5), Gundogan (6), David Silva (6), Bernardo Silva (8), Sane (6), Mahrez (5), Jesus (6)
Varamenn: Sterling (6), Zinchenko (6), Aguero (7)
Athugasemdir
banner
banner