Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. mars 2019 21:04
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Allain skúrkurinn í tapi Dijon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guingamp 1 - 0 Dijon
1-0 Ludovic Blas ('86, víti)

Rúnar Alex Rúnarsson var á bekknum er Dijon tapaði fyrir Guingamp í franska boltanum í kvöldin.

Allain varði mark Dijon en hann tók byrjunarliðssætið af Rúnari fyrr á tímabilinu.

Leikurinn var nokkuð jafn þar sem liðin skiptust á að eiga færi en undir lok leiksins endaði Allain sem skúrkurinn þegar hann gaf vítaspyrnu og fékk gult spjald fyrir.

Ludovic Blas gerði sigurmarkið úr vítaspyrnunni og er staða Dijon orðin ansi slæm í fallbaráttunni.

Dijon er átta stigum frá öruggu sæti, en einu stigi á eftir Guingamp sem er í umspilssæti á fallsvæðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner