Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 22. mars 2019 16:07
Ívan Guðjón Baldursson
Hafþór Péturs í Þrótt R. (Staðfest)
Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
Þróttur R. er búið að krækja í varnarmanninn efnilega Hafþór Pétursson á lánssamningi frá ÍA út tímabilið.

Hafþór er aðeins 21 árs gamall og gerði gott mót með ÍA í Inkasso-deildinni síðasta sumar. ÍA vann sér inn sæti í Pepsi Max-deildinni og hefur ákveðið að lána varnarmanninn aftur í Inkasso-deildina.

Hafþór á 34 leiki að baki fyrir meistaraflokk ÍA og 2 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands.

Þróttur R. endaði í 5. sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra, 12 stigum eftir toppliði ÍA.

„Við bjóðum Hafþór velkominn í hjartað í Reykjavík. Lifi……!" segir í fréttatilkynningu Þróttar.
Athugasemdir
banner
banner