Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 22. mars 2019 21:31
Elvar Geir Magnússon
Viðar skoraði og beindi fagninu að Kjartani Henry
Icelandair
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson tvöfaldaði forystu Íslands gegn Andorra í kvöld. Viðar var kallaður inn í hópinn í vikunni en hann hafði áður gefið út að hann ætlaði að taka sér frí frá landsliðsverkefnum.

Kjartan Henry Finnbogason var augljóslega ekki sáttur við endurkomu Viðars og setti meðal annars inn færslu með mynd af broskalli með rennilás fyrir munninn.

Viðar fagnaði marki sínu í kvöld með því að þykjast vera að loka rennilás yfir munninum á sér. Augljóst að því var beint að Kjartani.

Hér að neðan má sjá myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók þegar Viðar fagnaði markinu. Viðar hljóp að Hafliða og kyssti myndavél hans er hann fagnaði.

Þegar Viðar kom upp að myndavélinni fór fókusinn á myndavélinni.


Athugasemdir
banner
banner