Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. mars 2019 13:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterling minntist Damary Dawkins
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling fór á kostum þegar England valtaði yfir Tékkland í fyrsta leik sínum í undankeppni EM í gær. England vann 5-0 og skoraði Sterling þrennu.

Þessi frábæri leikmaður fagnaði þriðja marki sínu með því að lyfta treyju sinni upp og sína bol. Á bolnum var mynd af Damary Dawkins, sem var á mála hjá Crystal Palace.

Dawkins var greindur með hvítblæði er hann var níu ára gamall og lést hann 17. mars síðastliðinn.

Damary og Sterling höfðu hist og reyndi Sterling að gera sitt til að hjálpa drengnum unga í veikindunum. Sterling notaði samfélagsmiðla til þess að finna líffæragjafa fyrir Damary og tókst það. Veikindin tóku sig hins vegar upp að nýju og lést hann í síðustu viku.

Sterling minntist hans í gær eins og sjá má hér að neðan. Mjög sorglegt.





Athugasemdir
banner
banner