Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   sun 24. mars 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Peter Schmeichel besti erlendi markvörður í sögu Úrvalsdeildarinnar
Mynd: Getty Images
Könnun fór fram á BBC á dögunum þar sem bestu leikmenn Úrvalsdeildarinnar sem ekki eru fæddir á Bretlandseyjum voru valdir eftir því hvar á vellinum þeir spiluðu.

Valið fór þannig fram að nefnd valdi þrjá markmenn, þrjá varnarmenn, þrjá miðjumenn og fjóra sóknarmenn. Mengi leikmanna var það að þeir urðu allir að hafa komist í lið ársins í Úrvalsdeildinni. Svo var kosið um hver væri bestur í hverri stöðu og einnig hver fékk flestu atkvæðin sem besti erlendi leikmaður deildarinnar frá upphafi. Alls voru ríflega 250 þúsund atkvæði greidd í kosningunni.

Þeir þrír markmenn sem voru valdir af nefndinni voru þeir David De Gea(Man UTD), Petr Cech(Chelsea og Arsenal) og Peter Schmeichel(Man UTD, Man City og Aston Villa).

David De Gea fékk þriðju flestu atkvæðin, Petr Cech fékk næst flest og Peter Schmeichel fékk flestu atkvæðin. Schmeichel fékk alls 5% heildaratkvæða yfir hver væri besti útlendingurinn í sögu deildarinnar.

Alan Shearer, markahæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar frá upphafi tjáði sig um Schmeichel á BBC í kjölfar kosningarinnar og hafði þetta að segja: „Ég spilaði á móti Peter nokkrum sinnum. Hann var mikill sigurvegar og stýrði vörninni vel. Hann var ekki hræddur í teignum og maður þurfti að vera mjög nákvæmur ef maður ætlaði að skora fram hjá honum." sagði Shearer.

Shearer bætti einnig við að hann vildi nefna nafn Edwin van der Sar(Fulham og Man UTD) á nafn þar sem að hans mati hafi van der Sar verið næsti maður á listanum inn á top 3 erlenda markmenn í sögunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner