Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
banner
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
laugardagur 9. september
Lengjudeild karla
fimmtudagur 28. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Barcelona W - SK Brann W - 17:45
PSG (kvenna) - Hacken W - 20:00
Vináttulandsleikur
Argentina U-16 - Cote dIvoire U-16 - 17:30
Czech Republic U-16 - Mexico U-16 - 17:30
France U-16 - Saudi Arabia U-16 - 17:30
Japan U-16 - Wales U-16 - 17:30
mán 15.apr 2019 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 9. sæti: Grindavík

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Grindavík endi í 9. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Grindavík endar í 9. sæti ef spáin rætist.

Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd/Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Grindavík 35 stig
10. ÍBV 34 stig
11. Víkingur R. 25 stig
12. HK 12 stig

Um liðið: Töluvert af breytingum hafa átt sér stað á liði Grindavíkur frá því í fyrra. Nýtt þjálfarateymi í Grindavík og miklar mannabreytingar. Liðið endaði í 10. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra, sex stigum frá falli sem var vonbrigði. Annað árið í röð byrjaði Grindavík tímabilið af miklum krafti en seinni helmingurinn var hrein hörmung. Liði náði aðeins í átta stig í síðustu þrettán umferðunum í fyrra.

Þjálfari - Srdjan Tufegdzic: Tufa eins hann er yfirleitt kallaður tekur við Grindavíkur liðinu af Óla Stefán Flóventssyni. Hægt er að tala um hrein skipti því Óli Stefán tók við búi Tufa í KA á sama tíma. Tufa kom til landsins árið 2006 og lék þá með KA. Hann kom KA upp í Pepsi-deildina sumarið 2016 og stýrði liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra þar sem KA endaði í 7. sæti.

Styrkleikar: Þrátt fyrir miklar breytingar á leikmannahópnum frá því í fyrra þá er sterkt fyrir Grindavík að þeir halda lykilleikmönnum og leikmönnum sem mynda hryggjarsúluna í liðinu. Það hjálpar nýjum leikmönnum að aðlaðast nýju liði. Þá bindum við einnig miklar vonir við Srdjan Tufegdzic sem tók við liðinu fyrir tímabilið, það var öflugt fyrir félagið að fá hann inn og spennandi að sjá hvernig hann nær að púsla liðinu saman. Það gæti líka hjálpað liðinu að fara pressulaust inn í tímabilið.

Veikleikar: Töluverðar breytingar eru á liðinu frá því í fyrra og útlendingarnir sem komu eru óskrifað blað. Það hefur tekist illa hjá Grindavík að fá til sín Íslendinga. Heimavöllurinn hjá þeim skilaði einungis fjórum sigrum í fyrra. Þrír af fjórum markahæstu leikmönnum liðsins í fyrra eru horfnir af braut og nú þarf að finna nýja markaskorara í Grindavík.

Lykilmenn: Gunnar Þorsteinsson og Rodrigo Mateo. Gunnar er fyrirliði Grindvíkinga og hefur verið lykilmaður í liðinu síðustu tímabil. Rodrigo er að fara inn í sitt fimmta tímabil í Grindavík og hefur vaxið ás megin með hverju tímabilinu.

Gaman að fylgjast með: Sigurjón Rúnarsson. 18 ára varnarmaður sem lék alla leikina í Lengjubikarnum með Grindavík. Fékk smjörþefinn af Pepsi-deildinni sumarið 2017 og fékk síðan enn fleiri tækifæri í fyrra.

Spurningamerkið: Útlendingarnir sem Grindavík fengu fyrir tímabilið eru allir stór spurningarmerki. Markvörðurinn serbneski Djogatovic hefur verið gríðarlega misjafn í vetur, á stundum rosalegar vörslur en þess á milli gerir hann afdrifarík mistök.

Völlurinn: Grindvíkingar eiga glæsilega stúku sem tekur 1450 áhorfendur. Grasið á vellinum sjálfum er yfirleitt alltaf iðargrænt og þá sérstaklega þegar líður á sumarið.

Þjálfarinn segir - Srdjan Tufegdzic
„Miðað við hvernig okkur var spáð í vetur þá er þetta hærra en áður. Sem er jákvætt og sýnir að við erum að gera eitthvað gott og þetta er allt á uppleið hjá okkur. Þessar spár eru skemmtilegar fyrir lesendur Fótbolta.net en þegar upp er staðið þá eru það leikirnir og frammistaða leikmannana sem skiptir máli. Ef 9. sætið yrði niðurstaðan þá er það betri árangur en í fyrra og markmið okkar er að gera betur en í fyrra. Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu frá því í fyrra og það tekur tíma að púsla liðinu saman og ná stöðugleika. Það er mjög erfitt fyrir lið eins og Grindavík með allar þessar breytingar að segja í hvaða sæti liðið ætlar sér að vera í."

Komnir:
Josip Zeba frá HAGL
Marc McAusland frá Keflavík
Mirza Hasecic frá Sindra
Patrick N'Koyi frá Top Oss
Vladan Djogatovic frá Serbíu
Vladimir Tufegdzic frá KA
Hermann Ágúst Björnsson frá ÍH

Farnir:
Björn Berg Bryde í Stjörnuna
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í FH
Sam Hewson í Fylki
Kristijan Jajalo
Sito
Will Daniels

Fyrstu fimm leikir Grindavíkur:
27. apríl Grindavík - Breiðablik
5. maí Grindavík - Stjarnan
11. maí ÍBV - Grindavík
16. maí Grindavík - KR
20. maí Grindavík - Fylkir

Sjá einnig:
Hin hliðin - Hermann Ágúst Björnsson
Niðurtalningin: Grindavík - Gunni Þorsteins og Alexander Veigar

Leikmenn Grindavík sumarið 2019:
Maciej Majewski
Adam Frank Grétarsson
Rodrigo Gomes Mateo
Aron Jóhannsson
Símon Logi Thasaphong
Vladimir Tufegdzic
Gunnar Þorsteinsson
Josip Zeba
Alexander Veigar Þórarinsson
Elis Alexander Tamburini
Valdan Djogatovic
Kiyabu Nkoyi (Patrick)
Nemanja Latinovic
Hilmar Andrew McShane
Jón Ingason
Hermann Ágúst Björnsson
Marc McAusland
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
Viktor Guðberg Hauksson
Marinó Axel Helgason
René Joensen
Ingi Steinn Ingvarsson
Sigurjón Rúnarsson
Sigurður Bjartur Hallsson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Arnar Helgi Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson, Daníel Geir Mortiz, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner