Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. apríl 2019 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Timo Werner ætlar ekki að endurnýja samninginn
Mynd: Getty Images
Timo Werner mun ekki framlengja samning sinn við þýska félagið RB Leipzig. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri félagsins, Oliver Mintzlaff.

Werner rennur út á samningi næsta sumar og mun Leipzig því væntanlega selja hann í sumar til þess að fá eitthvað fyrir hann. Hann hefur verið mest orðaður við Bayern München og Liverpool.

Werner gekk í raðir Leipzig frá Stuttgart 2016 og hefur síðan skorað 60 mörk í 108 leikjum.

„Við viljum framlengja við hann, en hann hefur tjáð okkur það að hann vilji ekki gera það," sagði Mintzlaff við Sky í Þýskalandi.

Werner 23 ára gamall og á 24 landsleiki og níu landsliðsmörk fyrir Þýskaland.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner