Fyrstu umferð Mjólkurbikars karla lýkur og í ljós kemur hvaða lið mætir Val í úrslitum A-deildar Lengjubikars kvenna á þessum mánudegi.
KB og Snæfell, sem bæði leika í 4. deild, eigast við á Leiknisvelli klukkan 20:00 í Mjólkurbikarnum. Sigurliðið mætir Ægi í 2. umferð.
Stærri leikurinn í dag er viðureign Þórs/KA og Breiðabliks í Boganum. Leikurinn er seinni undanúrslitaleikur A-deildar Lengjubikars kvenna. Þór/KA og Breiðablik enduðu í efstu tveimur sætum Pepsi-deildarinnar í fyrra, en það var Breiðablik sem hamapaði bæði Íslands- og bikarmeistaratitlinum.
Sigurliðið mætir Val í úrslitaleiknum, en Valur vann öruggan sigur á Stjörnunni í gær.
mánudagur 15. apríl
Lengjubikar kvenna A-deild - Úrslit
18:15 Þór/KA-Breiðablik (Boginn)
Mjólkurbikar karla
20:00 KB-Snæfell (Leiknisvöllur)
Athugasemdir