Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. apríl 2019 12:43
Arnar Daði Arnarsson
Kwame Quee gaf eftir tíuna til Guðjóns Péturs
Guðjón Pétur verður í tíunni í sumar.
Guðjón Pétur verður í tíunni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
GPL10
GPL10
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á laugardaginn var það tilkynnt að Breiðablik hafi keypt Guðjón Pétur Lýðsson frá KA eins og greint var frá á Fótbolta.net.

Eftir að Guðjón Pétur var tilkynntur í Blikana fóru stuðningsmenn liðsins að velta því fyrir sér hvort Guðjón Pétur fengi treyju númer 10 hjá félaginu en Guðjón Pétur hefur leikið í tíunni bæði hjá Breiðablik og Val undanfarin ár.

Kwame Quee sem gekk í raðir Breiðabliks frá Víkingi Ólafsvík í vetur fékk treyjunúmerið 10 og hefur leikið í þeirri treyju á undirbúningstímabilinu.

Á fréttamannafundinum var það hinsvegar tilkynnt að Guðjón Pétur fengi tíuna af Kwame Quee. Guðjón Pétur getur því andað léttar en ljóst var að hann hefði ekki fengið tíuna í KA þar sem einn af lykilmönnum KA síðustu ára, Hallgrímur Mar Steingrímsson er númer 10.

Guðjón hefur verið þekktur undir viðurnefninu GPL10 undanfarin ár og það ætti ekki að vera nein breyting á því í sumar. Ekki er vitað að svo stöddu númer hvað Kwame Quee verður í sumar, en samkvæmt stjórnarmönnum Breiðabliks var Kwame ekkert að stressa sig á treyjunúmeri sínu hjá Blikunum.

Breiðablik opinberaði þetta á Twitter-síðu sinni um helgina. „Auðvitað fær GPL tíuna - ekki spurning."




Þú getur keypt Guðjón Pétur í Draumaliðið þitt. Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsdeild Eyjabita og Fótbolta.net!
Athugasemdir
banner
banner
banner