banner
   mán 15. apríl 2019 20:38
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Ótrúlegir yfirburðir Atalanta ekki nóg gegn Empoli
Atalanta og Empoli skildu jöfn í kvöld
Atalanta og Empoli skildu jöfn í kvöld
Mynd: Getty Images
Atalanta 0 - 0 Empoli

Atalanta og Empoli gerðu markalaust jafntefli í eina leik kvöldsins í Seríu A á Ítalíu.

Atalanta var með gríðarlega yfirburði í leiknum og í raun ótrúlegt að liðið hafi ekki skorað en liðið átti 47 skot í leiknum þar af fóru átján skot á rammann.

Ótrúlegar tölur en liðið þurfti þó að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli sínum í kvöld.

Lokatölur 0-0 og Atalanta í 6. sæti með 53 stig á meðan Empoli er í 18. sæti með 29 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner