„Ótrúlega skemmtilegur leikur,'' sagði Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA eftir ævintýralegan leik gegn Breiðabliki, í undanúrslitum Lengjubikars kvenna.
Lestu um leikinn: Þór/KA 6 - 7 Breiðablik
Breiðablik hafði sigur í vítaspyrnukeppni eftir að hafa jafnað í blálok leiksins, um mínútu eftir að Þór/KA hafði komist yfir.
„Ég var ánægður með mjög margt í þessum leik, við vorum betra liðið heilt yfir. Vorum alltaf með yfirhöndina, komumst alltaf yfir og gáfum þeim óþægilega leiðinleg mörk, en mjög stoltur af stelpunum. Mér finnst við enn vera að sýna framfarir og við erum á mjög góðri leið.''
„Standið á hópnum er frábært, við vorum að koma úr 14 tíma ferðalagi í gær og eðlilega kannski þreyta í liðinu. Það var hinsvegar ekki að sjá í dag, en stundum er þetta svona,'' sagði Donni.
Donni er spenntur fyrir framhaldinu og sagði: „Nú bara styttist í mót og við spilum Meistarar meistaranna við Breiðablik og höfum bara gaman að því. Við töpum eiginlega aldrei fyrir þeim og ég er bara spenntur að mæta þeim aftur í næstu viku.''
Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir