Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. apríl 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Alisson nálgast met Pepe Reina
Alisson og Virgil van Dijk hafa myndað öflugt teymi
Alisson og Virgil van Dijk hafa myndað öflugt teymi
Mynd: Getty Images
Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker nálgast nú óðfluga met spænska markvarðarins Pepe Reina en Reina hélt 20 sinnum á sínu fyrsta tímabili með Liverpool.

Reina kom til Liverpool frá Villarreal sumarið 2005 og tókst strax að sanna sig en hann hélt eins og áður segir hreinu 20 sinnum á sínu fyrsta tímabili.

Enska félagið fjárfesti í brasilíska markverðinum Alisson Becker í sumar en hann kom frá Roma.

Hann er nú að nálgast með Reina en Alisson hefur nú haldið 18 sinnum hreinu eftir 2-0 sigurinn á Chelsea. Hann fær ágætlega auðvelda leiki til þess að bæta metið en Liverpool á eftir að mæta Huddersfield, Cardiff City, Newcastle og Wolves.

Alisson getur þó ekki bætt metið yfir flest hrein lök í deildinni frá upphafi en það er Petr Cech sem á það með Chelsea. Hann hélt hreinu 24 sinnum á sínu fyrsta tímabili og stendur það met enn.
Athugasemdir
banner
banner
banner