Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. apríl 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Zidane: Benzema er vanur þessu
Karim Benzema í leik með Real Madrid
Karim Benzema í leik með Real Madrid
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid á Spáni, var ánægður með framlag Karim Benzema gegn Leganes í gær.

Leganes og Real Madrid skildu jöfn, 1-1, í gær en það var Karim Benzema sem bjargaði Madrídingum.

Hann jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks en hann var að skora 27. mark sitt á tímabilinu í öllum keppnum fyrir félagið.

Benzema mátti oft þola mikla gagnrýni hjá Real en hann virðist hafa fundið taktinn á ný. Margir öflugir leikmenn hafa verið orðaðir við Real Madrid að undanförnu en Zidane segir að Benzema kippir sér ekkert upp við það.

„Hann er að spila mjög vel á þessu tímabili ef við horfum á mörkin. Hann er frábær leikmaður og þetta hefur breyst á þessu ári sem þýðir að hann fær fleiri mörk," sagði Zidane.

„Hann er vanur því að það sé orðrómur um hann og að aðrir leikmenn séu á leiðinni. Það breytir engu fyrir hann samt og persónuleiki hans hefur sýnt það að hann vill bara hjálpa liðinu og hann er að gera það vel," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner