þri 16. apríl 2019 17:30
Arnar Daði Arnarsson
Viktor Marel Kjærnested í Leikni R. (Staðfest)
Leiknismenn hafa bætt við sig leikmanni.
Leiknismenn hafa bætt við sig leikmanni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Sóknarmaðurinn Viktor Marel Kjærnested hefur gengið til liðs við Leikni R. í Inkasso-deildinni frá Aftureldingu.

Viktor Marel er fæddur árið 2000 og hefur síðustu tvö tímabil leikið með Aftureldingu í 2. deildinni. Hann lék tvo leiki með liðinu tímabilið 2017 og í fyrra lék hann fjóra leiki með liðinu þegar Afturelding tryggði sér sæti í Inkasso-deildinni.

Hann hefur hinsvegar ákveðið að taka slaginn með Leikni R. í Inkasso-deildinni í sumar en Breiðhyltingar höfnuðu í sjöunda sæti í fyrra.

Leiknir R. mætir Fjölni í Mjólkurbikarnum á morgun og er Viktor Marel kominn með leikheimild með liðinu fyrir þann leik.

Leiknir R.

Komnir:
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson frá KR
Ingólfur Sigurðsson frá KH
Nacho Heras frá Víkingi Ó.
Natan Hjaltalín frá Fylkir
Stefán Árni Geirsson frá KR
Hjalti Sigurðsson frá KR
Viktor Marel Kjærnested frá Aftureldingu

Farnir:
Miroslav Zhivkov Pushkarov til Búlgaríu
Ryota Nakamura
Tómas Óli Garðarsson
Trausti Sigurbjörnsson í Aftureldingu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner