Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 16. apríl 2019 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andre Gomes í þriggja leikja bann
Mynd: Getty Images
Andre Gomes, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann.

Hann er dæmdur í bann fyrir brot í 2-0 tapinu gegn Fulham um síðustu helgi.

Gomes traðkaði á Aleksandar Mitrovic, sóknarmanni Fulham. Dómari leiksins sá ekki atvikið en það náðist á myndband. Því var hægt að dæma Gomes í bann.

Gomes mótmælir ekki dómnum og verður því í banni gegn Manchester United, Crystal Palace og Burnley.

Gomes, sem er í láni frá Barcelona, hefur leiki 28 leiki fyrir Everton á tímabilinu og skorað eitt mark.


Athugasemdir
banner
banner