Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 16. apríl 2019 21:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lingard: Messi var upp á sitt allra besta
Mynd: Getty Images
Frammistaða Jesse Lingard gegn Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld var ekki upp á marga fiska, rétt eins og hjá öllum öðrum leikmönnum Manchester United.

United tapaði 3-0 í kvöld og samanlagt 4-0 í einvíginu gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þú getur ekki gert mistök í svona leikjum. Við vorum með yfirburði fyrstu 15 mínúturnar og leikurinn hefði getað farið á annan veg," sagði Lingard eftir leikinn í kvöld.

„Lionel Messi var upp á sitt besta, hann er einn sá besti í heiminum."

„Það eina sem við getum gert er að halda áfram, það er stór vika framundan."
Athugasemdir
banner
banner
banner