Lionel Messi skoraði tvö mörk þegar Barcelona vann Manchester United í Meistaradeildinni í gær og komst í undanúrslitin.
„Við áttum magnaða frammistöðu, við sýndum hvað við getum. Við hikstuðum fyrstu mínúturnar en eftir það réðum við lögum og lofum," segir argentínski snillingurinn.
„Við megum ekki byrjar Meistaradeildarleik svona. Slæmar mínútur í upphafi geta gert hlutina erfiða og mögulega orðið til þess að við föllum úr leik. Við verðum að vera meðvitaðir um það."
Barcelona snýr aftur í baráttuna í La Liga um helgina þegar liðið mætir Real Sociedad.
„Við komumst skrefinu lengra í kvöld en verðum að sýna þolinmæði. Núna verðum við að einbeita okkur að deildinni og að því að vinna spænska titilinn," segir Messi.
Athugasemdir