Einn umtalaðasti fótboltamaður heims í dag er Matthijs de Ligt, hinn 19 ára fyrirliði Ajax.
ESPN segir að Barcelona sé að færast nær samkomulagi við Ajax um kaup á miðverðinum unga.
Kaupverðið á honum er talið verða um 75 milljónir evra.
ESPN segir að Barcelona sé að færast nær samkomulagi við Ajax um kaup á miðverðinum unga.
Kaupverðið á honum er talið verða um 75 milljónir evra.
Juventus og Bayern München hafa einnig reynt að fá De Ligt en ESPN segir að leikmaðurinn vilji helst fara til Börsunga.
De Ligt skoraði með skalla þegar Ajax sló Juventus úr leik í Meistaradeildinni og komst í undanúrslitin.
Í sumar mun liðsfélagi De Ligt, miðjumaðurinn Frenkie de Jong, verða leikmaður Barcelona.
Athugasemdir